.comment-link {margin-left:.6em;}

laugardagur, nóvember 08, 2003

 
Ég, um mig, frá mér, til mín.,.,.,.,.,.,.,.,Altsó, ég er nú ekki sú allra kjaftglaðasta en ég hef bersýnilega hitt á sama thema og einhver annar sem hefur skýrt sitt blogg einkaþankar. Allavega ættla ég nú ekki að breyta nafni á mínum hugrenningum sem eru algerlega mínar og munu því halda áfram að heita private thoughts.

Svíaríki, skrítinn heimur. Eftir mörg ár í þessu landi líðræðis, jafnræðis og hvaða skítanöfnum sem liðið kallar hlutina hér, þá er ég komin örlittlu nær þessari þjóðarsál svía, þ.e. hef aðeins fengið innsýn. Einn starfsfélagi minn, er bæði það sem hægt er að kalla handleiðari og stjórnar teaminu sem ég vinn í hér í vinnunni (fjögur team), sagði við mig í ágúst.
"�r, sendu abstrakt á sænska læknaþingið."
Hlíðin, sendi ég auðvitað abstakt á sænska læknaþingið.
Svo kemur vinnuskemað og þessi starfsfélagi minn gerir vinnuskemað fyrir okkar team. Það kemur í ljós að ég var ekki með klukkutíma frí meðan sænska læknaþingið er, þrátt fyrir að hann hefði sjálfur sagt mér að senda draslið á læknaþingið og svo segir hann mér að ég ég geti ekki farið á læknaþingið þar sem ég hefði ekki beðið um FR� til að fara á sænska læknaþingið í Stokkhólmi. Hvað á maður að halda um svona fólk.

Já já, ég veit hvað það heitir. Það heitir tvöföld skilaboð.

Sami maður var heima hjá sér og sonur hans var að leika sér á grasflötinni fyrir framan húsið. Þá segir hann við FIMM ára son sinn. Heyrðu Gústaf, mér finnst að þú egir að fara í skóna þína. Barnið var mjög upp með sér að F� A� VELJA, fara í skóna eða halda áfram skólaus. Barnið stoppaði og stóð stolt fyrir framan föður sinn, sakleysið uppmálað, lýðræðið í hávegum, gat kosið SJ�LFUR um hvort hann vildi vera í skóm eða skólaus. "Nei, ég vil vera skólaus"

Það er ekki auðvelt að lýsa svipbrigðunum á andliti þessa drengs þegar faðir hans sagði nei, Gústaf þú ferð í skóna.

Svona er sænska þjóðarsálin formuð.

Comments: Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?