.comment-link {margin-left:.6em;}

mánudagur, október 30, 2006

 
Það er einhvernvegin ferlega gott að bara tala við sjálfa sig hérna.
Enginn veit að ég er farin að blogga, eða hef alltaf verið að blogga öðru hverju.
Jæja,
nú er svo mál, að venju er nú valið ENN EINU SINNI á framboðslista fyrir kosningar. Kallast prófkjör.
Og viti menn ! ! !
Eins og venjulega,
hverjir eru í fyrstu plássunum,
nú,
strákarnir,
auðvitað,
það eru alltaf strákarnir sem fá þessar "ábyrgðar" stöður, það er nú svo að karlmenn eru það sem plampar um á tveimur jafnfljótum sem eru svo ábyrgðarfullir og traustverðugir og allt, svo hvers vegna á að velja einhverjar leiðinda kerlingar.
Geta þessar druslur ekki bara haldið sig heima hjá sér, ömurlegar, orðnar gráhærðar með litað hár og hangandi brjóst, ekkert einu sinni til að horfa á, og hvað eru kerlingar til annað, farið heim eða verið augnayndi, eitthvað til að skreyta listana með, eða kítta uppí þegar við förum að skammast okkar fyrir hvað það eru fáar sem eru valdar á listann,
eða vill Sjálfstæðisflokkurinn ekki vinna kostningarna næst þegar kosið verður ? ? ?
GOTT, GOTT,
Gæti nú einhver sagt að þetta sé nokkuð sem gamall sossi, eða vinstri sinni vilji.
NEI, síður en svo,
ég og aðrar konur, kerlingar, stelpur og hvað sem við köllumst, við viljum,
viljum, VILJUM, VILJUM, VILJUM,
við viljum fá konur inn!
Það er nú svo að helmingur mannkynsins eru konur og mér finnst alveg sjálfsagt að helmingur fulltrúa þjóðarinnar á alþingi séu konur. Og enginn getur sagt að ekki helmingur íslensku þjóðarinnar sé kvennfólk, eða ?

Skamm á ykkur, andskotans karlrembur að ekki getað haft dug í ykkur að koma á kerfi sem tryggir konum gengi í flokk ykkar. Það er áratuga reynsla á að þessi "hallærislegu", "karlrembu" prófkjör ykkar, sem eru fullkomlegur skrípaleikur.

OG svo eru fíflin í samfylkingunni að feta í fótsporin , , , ,
hvar endar þetta ? ? ?
myrknætti svartra miðalda? eða?

Mér er nú orðið orðafátt.

Kveðja Ýr.

PS. Guðisélof að ég er ekki lengur með kosningarétt á klakanum.

PPS. Og að ég er enn óflokksbunin.


sunnudagur, október 15, 2006

 
BOCELLI
Hefur einhver heyrt fallegri rödd ? ???
Ég veit núna að þessi maður er raunverulegur,
hann andar inn
og
hann andar út
og
það
tekur
langannnnnnnnnnnnnnnnn tíma, þvílíkt eyrnasalgæti,, ,,,, ,,, . . .... ...........
UNAÐUR.
Í alvöru talað, gæsahúð, maður bara situr og hlustar á goðið í fullkomlega ömurlegum íshokký sal sem öll hljóð hverfa í, samt, samt, samt getur þessi ítali fyllt út í allla króka og kima og það kemur aftur til mín, til allra annara í salnum og við, ég og allir aðrir fáum gæsahúð, förum í innra flog, verðum hreynt algerlega að viðurkenna það fyrir "alheiminum" að það er bara þannig að séní bera sig ekki saman hinn gráa pöpul sem allt er að kaffæra.
Núna fer ég í bælið, ekki spurning, er fullkomlega búin að vera, get ekki innbyrgt meira af söng sem ekki kæmist á venjulega LP plötu.

Er farin í bælið og hana nú,
nætí nætí

Ýr.

PS; þessi grái pöpull er auðvitað alltaf að bera sig saman við séníin og bara eru þarna, í samanburðarherberginu...,.,,..,,.,..,.,,.,.,.,.,

þriðjudagur, október 10, 2006

 
JÆJA JÆJA ! ! !

Smá pistill . . .

Síðustu viku var ég í 3 heila dag með 4 öðrum sem vinna með mér í svona "konflikt, hópæfingu, leysa vandamál, samskiptaþjálfun, eða þannig sko"
Mjög athygglisvert, vægast sagt.
OK !
Nú kemur sú hugsun hjá einhverjum, núna er Ýr Logadóttir búin að vera erfið í umgengni,,,,
ha ha ha
ó nei
ekki ég að þessu sinni sem er sökudólgur eins og venjulega, segja sumir !
Þessi tími var sem sagt til að leysa konflikta milli tveggja annara manneskja og sem núna í "retrospektiv" hefur verið svo yfirþyrmandi að allt annað hefur einhvernvegin fallið í skuggann. Veit ekki hvernig ég á að skýra þetta út, en þetta ástand (sem hefur varað í 6 ár) hefur einhvernveginn sett allt annað í "geymslu", þannig að enginn hefur tekið á öðrum vandamálum þar sem allir aðrir en þessir tveir sem hafa átt í stríði hafa einhvernveginn lamað öll önnur samskipti. Svo að enginn hefur tekið upp neitt sem honum hefur mislíkað vegna þess að þá hefði það getað túlkað sem viðkomandi hafi tekið afstöðu í deilum þessara tveggja sem hafa háð stríð í "grúppunni".
Hefur einhver skilið hvað ég er að reyna að segja ? ? ? ? ? ? ? ? ?

Ef þú, ef einhver les þetta sendu mér þá kommenta.

Bless í bili,

eða þannig sko ,

This page is powered by Blogger. Isn't yours?