.comment-link {margin-left:.6em;}

sunnudagur, nóvember 30, 2003

 
OK OK, nú reyni ég að rétta síðasta blogg, hér kemurðað:

Ég, um mig, frá mér, til mín.,.,.,.,.,.,.,.,.,.,
Altsó, ég er nú ekki sú allra kjaftglaðasta en ég hef bersínilega hitt á sama thema og einhver annar sem hefur skýrt sitt blogg einkaþankar. Allavega ætla ég ekki að breyta nafni á mínum hugrenningum, sem eru algerlega mínar og munu ávalt halda áfram að heita private thoughts.

Svíaríki, skrítinn heimur. Eftir mörg ár í þessu landi lýðræðis, jafnræðis og hvaða skítanöfnum sem liðið kallar hlutin hér, þá er ég komin örlittlu nær þessari þjóðarsál svía, þ.e. hef aðeins fengið innsýn. Einn starfsfélagi minn, er bæði það sem hægt er að kalla handleiðari minn, stjórnar teeminu sem ég vinn í hér í vinnunni (fjögur teem) og vinur minn, sagði við mig í ágúst; “sendu abstrakt á sænska læknaþingið”
Hlíðin, sendi ég auðvitað abstrakt á sænks læknaþingið. Svo kemur vinnuskemað og þessi starfsfélagi minn gerir vinnuskemað fyrir okkar team. Þá kemur í ljós að mér hafði ekki verið veittur tími til að fara til Stokkhólms til að fara á læknaþingið til að flytja erindið. Ég spurði auðvitað hversvegna; svarið var þú baðst ekki um frí. Halló, hann sagði mér að senda abstrakt og það þýðir auðvitað að maður verður að fara sjálfur á staðinn. Þá kom auðvitað í ljós að hann vildi bara halda erindið sjálfur. Hvað á maður að halda um svona fólk.

Já já, ég veit hvað það heitir, tvöföld skilaboð.

Sami maður var heima hjá sér og sonur hans var að leika sér á grasflötinni fyrir framan húsið. Þá segir hann við FIMM ára son sinn; Heyrðu Gustaf, mér finnst að þú egir að fara í skóna þína. Barnið var mjög upp mér sér að FÁ AÐ VELJA, fara í skóna eða halda áfram skólaus. Barnið stoppaði og stóð stolt fyrir framan föður sinn, sakleysið uppmálið, lýðræðið í hávegum, gat kosið sjálfur um hvort hann vildi vera í skóm eða skólaus. “Nei, ég vil vera skólaus”.

Það er ekki auðvelt að lýsa svipbrigðunum á andliti þessa drengs þegar faðir hans sagði: “NEI, Gústaf, þú ferð í skóna.”

Svona er sænska þjóðarsálin formuð.

Já það verður spennandi að sjá hvort þetta hafi tekist.

Comments: Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?