.comment-link {margin-left:.6em;}

þriðjudagur, desember 16, 2003

 
16 des ............
Jóla jóla jólafrí...... Loksins.......
og maður bara kominn á klakann í súldina. Það sást ekki í jörð fyrr en bara maður var næstum kominn niður. Nú er maður kominn niður og sestur í eldhúsið hjá litlu systur, eftir að hafa gengið í gegnum nokkur þefpróf hjá fallegum hundi í Leifstöð. Hann hafði engann áhuga á mér og þá datt út úr mér, ég er nú alveg hætt svona löguðu. Aftur á móti flaðraði hundur upp um eina fullkomlega heiðarlega konu á besta aldri sem hefur ALDREI verið kennd við nokkurt slíkt sóðalíf sem þessi hundur á að koma upp um. Og konan er auk þess gift lækni.,.,.,.,.,.,. Ég sá ekki þá konu meir.,.,.,.,.,.,.,.,. ættli hún hafi fengið góðan umgang þarna útfrá.,.,.,.,.,.,.,.

Djók til hliðar.
Lífið semsagt komið á réttan kjöl, ég komin í jólafrí, báturinn á þurrt, og Haraldur ennþá með kateter (þvaglegg). Vonandi getur hann migið í saltann sjá næsta sumar.

Bæjó.....

Comments: Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?