.comment-link {margin-left:.6em;}

mánudagur, mars 01, 2004

 
Jæja, jæja, best að láta heyra í sér , , , ,

Nýkomin frá Ósló. Nei, Haraldur slapp við að bjóða mér í kaffi. Hafði fullt að gera. Gerði tvær tilraunir til að komast til Ósló. Sú fyrri á föstudaginn. Gafst upp eftir næstum 100 km vegna snjókomu. Sá ekki rasgat og snéri við. Fór svo að lokum á laugardaginn. Hata að keyra. Sérstaklega í myrkri enda var auðvitað komið myrkur á leiðinni til baka.

Well, anyway.
Haraldur karlinn er hættur að reykja og lýsti því yfir að hann var eginlega hálfspælur yfir því hversu auðvelt það var. Vegna þessa konunglega afreks, er komið í tísku í Noregi að hætta að reykja, enda eins gott þar sem lög um bann við reykingum á veitingarstöðum og börum tekur gildi núna í sumar.
LOKSINS, LOKSINS, LOKSINS, tekur eitt af norðurlöndunum það stóra skref að banna reykingar á veitingarstöðum og börum.
LOKSINS, LOKSINS, LOKSINS, getur maður farið einhvers staðar á norðurlöndunum út að éta og drekka án þess að kafna í sígarettureyk og lykta eins og skíthaugur þegar maður kemur heim til sín.

Góða nótt . . . . .

Comments: Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?