.comment-link {margin-left:.6em;}

fimmtudagur, júní 10, 2004

 
Nýtt blogg. Nýtt blogg. Nýtt blogg......

Maður er bara farinn að blogga daglega. Hvað er að ske ?????
Kanski bara vegna þess að ég er núna komin til systur minnar BLOGG DROTTNINGARINNAR, siggaloga.blogspot.com..... Það var mjög skemmtilegt að lenda á Skiphol hér uppúr kl 13 á umþaðbil sama tíma og Icelandair með fullt af löndum. Það er einhvernveginn svo heimilislegt að sjá landann. Það fer aldrei framhjá manni að þarna er manns heimafólk. Hollningin. Tala hátt, "Jói, þarna er taskan okkar". Og síðast en ekki síst, það sem maður alltaf þekkir landann á, góna, glápa, skoða sig um hring svo allir vita að þeir eru að skoða sig um hring með tilheyrandi hljóðum.

Nei ættla ekki að tala illa um landann, en þetta vekur alveg óstjórnlega heimþrá hjá mér. Ég fitta svo ferlega vel inn í þetta munstur.....

Gleðilegt sumar,,,,
Ýr..

Comments: Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?