.comment-link {margin-left:.6em;}

mánudagur, ágúst 02, 2004

 
Sumarfrí, sumarfrí, sumarfrí,,,,

Er auðvitað á klakanum í sumarfríi og er orðin ömmusystir og frænka mín varð 16 ára í dag og hún vill fá tattú í afmælisgjöf og hún vill líka fá pinna í gegnum tunguna. Hvert er þessi jarðarkringla á leið?????

Yndislega falleg dama kemur í heiminn og hin yndislega sem er hér til staðar vill láta greipa á sig óafturkallanlegu krassi og gata á sér tunguna. Hvað á fólk eins og ég og hinir venjulegu einstaklingar að halda um svona heim?

Rigning, alveg frábært, sól líka alveg frábært. Eins og hún frænka mín segir þá er ekkert veður á Íslandi, bara sýnishorn. Ef þér líst ekki á veðrið eins og það er núna, þá bara bíða smá og næsta sýnishorn kemur.

Bless í bili, tvö blogg á dag og maður verður þreyttur og hvílir sig.,.,.,.

Comments: Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?